Desember
Áramótabrennan 2003
Áramótabrennan 2003
Áramótabrennan 2003

31.12.2003 Desember

Kveikt í áramótabrennunni kl. 20:30 (frestað)

[Uppfært kl.21:30 gamlárskvöld  || Frestun brennu til nýársdags kl.17:00 vegna veðurs]

Unglingadeildin ásamt félögum í Björgunarfélagi Hornafjarðar hafa safnað saman í brennuna sem er inn við Mjólkurstöð á sama stað og í fyrra og er hún álíka vegleg og þá.. Þeir nutu aðstoðar frá Guðna Karls og Nonna Páls við að flytja efnið á brennuna sem kom víða að og m.a. frá Skinney-Þinganes, brettaverksmiðjunni og voru tré úr skógi Einars Hálfdánar einnig sett á brennuna. Enginn brennukóngur hefur verið ráðinn eftir að Árni Vignison heitinn sá um það starf.

Þegar að Olíufélagið hefur sett olíu á brennuna kl.20:30, til að koma eldinum af stað eins og þeir hafa gert undanfarin ár þá mun Björgunarfélagið vera með öfluga flugeldasýningu þar sem verða m.a. tívolíbombur, snúningstertur og margt fleira sem mun lýsa mun upp kvöldhimininn með tilheyrandi hvissi og sprengingum.
Spáin sagði að það ætti að auka vindinn fram eftir degi en að ganga niður um miðnætti, en eins og alþjóð veit þá er alltaf gott veður á gamlárskvöld eins og aðra daga á Hornafirði. Ef breyting verður á fyrirhugaðri dagskrá þá munum við greina frá því hér og á SkjáVarpi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica