Desember
Shellskálinn rifinn
Shellskálinn rifinn

29.12.2003 Desember

Shellskálinn rifinn

Í dag var hafist handa við að rífa Shellskálann við Hafnarbraut og sér Rósaberg um framkvæmdina. Shellskálinn hefur í gegnum tíðina þjónað Hornfirðingum sem söluskáli og veitingastaður og eiga margir góðar minningar þaðan, bæði í starfi og leik. Shellskálinn sem var í eigu Skeljungs hefur ekki hýst neina starfssemi s.l. þrjú ár og hefur á þeim tíma alls ekki verið nein bæjarprýði, þar sem hann stendur við aðalgötuna, enda ekkert verið hirt um húsið og því löngu orðið tímabært að fjarlægja það.

Gengið verður frá lóðinni á snyrtilegan hátt en hún er ætluð undir verslunar og þjónustuhús. Engar umsóknir hafa borist í lóðina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica