Desember
Jólatrén skarta sínu fegursta
Jólatrén skarta sínu fegursta

29.12.2003 Desember

Jóla-fréttir frá Hornafirði

Hornfirðingar hafa átt friðsöm og slysalaus jól að því best er vitað og að sögn lögreglu hafa engin umferðaróhöpp orðið. Veður hefur verið hið fegursta, dálítið frost og snjóföl á jörðu. Ólafur Sigurðsson í Svínafelli í Öræfum sagði að þar hafi verið smá snjóföl jóladagana svona rétt til að gera allt enn fallegra og jólaskreytingar í sveitinni aukast með hverju árinu.

Það er ekki orðið eins mikið um heimsóknir á milli bæja í sveitinni og var hér áður fyrr. Þegar ég kom hingað fyrst var mikið um að fólk af innbæjunum færi milli bæja og þá var spilað fram eftir nóttu segir Ólafur, nú orðið er svo mikið úrval af allskonar afþreyingarefni í fjölmiðlum sem breytir þessu gamla vinsæla munstri. Jólatrésskemmtunin í Hofgarði er eina samkoman hér í sveitinni yfir hátíðina og hana sækja allir sem tök hafa á.

Þorbjörg Arnórsdóttir á Hala segir að í Suðursveit haldi menn mikið í gamlar hefðir og haldi fjölskylduboð þar sem stórfjölskyldur koma saman. Jólaballið með jólasveinum og tilheyrandi á Hrollaugsstöðum er alltaf vel sótt og þangað fara allir sem mögulega komast að heiman. Snjólaust var í Suðursveit um jólin.

Ferðaþjónustan á Skálafelli var sennilega eini ferðaþjónustustaðurinn hér um slóðir sem var opinn um jólin. Þóra Jónsdóttir sagði að fimmtán manna frönsk fjölskylda hefði verið hjá þeim á jóladag gist og haldið síðan áfram ferð sinni. Þetta voru afi og amma með börn og barnabörn sem voru hér að skoða sig um og kynnast íslensku jólahaldi. Fólkið borðaði með heimilisfólkinu hangikjöt, svína- og lambakjöt og var lambið greinilega vinsælast. Laufabrauð og flatbrauð fannst þeim mjög gott. Þóra sagðist eiga á von á fleiri frökkum um nýjárið og að þessar heimsóknir væru skipulagðar í gegnum Ferðaþjónustu bænda.
Hugsanlega mætti koma á jóla-ferðaþjónustu sem væri einn þáttur í lengingu ferðatímans.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica