Tökur á Batman kvikmynd í Öræfum
Í byrjun janúar hefst undirbúningur að töku Batman-kvikmyndar í Öræfum en stefnt er að hefja myndatöku seinni hluta febrúar. Framleiðandi myndarinnar eru Warner brothers og mun Saga Film sér um myndatökur hér á landi. Reiknað er með að um 150-200 manns muni taka þátt í undirbúningi og töku myndarinnar í Öræfum. Saga Film sá einnig um undirbúning og umsjón við upptöku á nýjustu James Bond myndinni og að sögn talsmanns fyrirtækisins þá verður vinnan við Batman kvikmyndina ekki eins tæknilega viðamikil og tökurnar á Bond sem fóru fram við Jökulsárlón.
Fréttin um að tökur á Batman hefjist í byrjun ársins eru góð jólagjöf til Öræfinga sagði talsmaður Saga Film og það yrði leitað til heimamanna með vinnu við undirbúning myndarinnar. Starfsmenn fyrirtækisin munu verða með aðsetur á Hótel Skaftafelli. Hvort heimamenn fengju einhver hlutverk í myndinni vildi hann ekkert segja um.





Skrifa athugasemd