Það er gaman á Þorláksmessu
Í dag Þorláksmessu verður Hafnarkirkja opin milli kl. 16 og 18. Tekið verður á móti söfnunarbaukum Hjálparstarfs kirkjunnar, Spilafjelagið verður í jólasveiflu, seld verða friðarkerti og boðið upp á kaffi og eitthvað sætt með. Lúðrasveit Hornafjarðar mun skemmta gestum og gangandi víðsvegar um bæinn og svo er von á jólasveinunum á bæjarrölti milli kl. 17 og 19. Félagar í karlakórnum Jökli munu svo þenja raddböndin í Miðbæ í kvöld kl. 20:30. Það ætti því engum að þurfa að leiðast á búðarröltinu í dag og í kvöld, en flestar verslanir á Hornafirði eru opnar til kl. 23:00.
Á morgun aðfangadag verður aftansöngur í Hafnarkirkju kl. 18:00 og miðnæturmessa kl. 23:30. Á jóladag verða síðan hátíðarguðsþjónustur í Hafnarkirkju, Bjarnaneskirkju, Hofskirkju og Kálfafellstaðarkirkju.





Skrifa athugasemd