Desember
Sólarlag við höfnina
Sólarlag við höfnina

20.12.2003 Desember

Hornafjarðarhöfn komin í jólabúninginn

Hornafjarðarhöfn er komin í jólabúning og ljósaskreytingar komnar á bátana.Starfsfólk hjá Skinney Þinganesi fer í jólafrí fyrir helgina og mætir ekki til vinnu fyrr en 29.des.
Tvö af skipum Skinneyjar Þinganess eru í Hafnarfirði, annað í slipp en hitt í vélarupptekt en áhafnir komnar heim. Það er búið að vera mjög mikið að gera hjá okkur í vetur og vinna samfelld og því enn kærkomnara fyrir fólkið að komast tímanlega í jólafrí sagði Gunnar Ásgeirsson.

Strax eftir áramótin hefst hefðbundin vetrarvertíð, netabátar byrja veiðar, einn bátur fer á snurvoð annar á fiskitroll og tveir á síld og loðnu. Mikil eftirspurn er eftir humri ekki síst fyrir jólin og hélt Gunnar að hann yrði fáanlegur eitthvað frameftir vetri en veiðar á honum eru bannaðar þar til 15. mars.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica