Desember
Jólatónleikar karlakórsins
Á sunnudaginn mun karlakórinn Jökull halda sína árlegu jólatónleika í Hafnarkirkju. Á tónleikunum koma fram auk karlakórsins, Kvennakór Hornafjarðar, Samkór Hornafjarðar, Gleðigjafar, kór aldraðra, Barnakór Hafnarkirkju og Lúðrasveit Hornafjarðar. Í gegnum tíðina hefur aðgangseyrir af tónleikunum runnið til góðgerðamála en að þessu sinni mun hann renna til kaupa á konsertflyglinum í Nýheimum. Stjórnandi karlakórsins er Jóhann Morávek og undirleikari Guðlaug Hestnes.
Það nýnæmi verður á tónleikunum að þessu sinni að allir kórarnir fimm munu syngja saman tvö lög við undirleik hljómsveitar. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og er aðgangseyrir kr. 1.200.





Skrifa athugasemd