Mikil ljósadýrð á Hornafirði
Aldrei hefur jafnmikil ljósadýrð verið á Hornafirði eins og fyrir þessi jól og greinilegt að Hornfirðingar vilja vera vel upplýstir. Mikið hefur verið lagt í skreytingar, bæði hjá einstaklingum sem og fyrirtækjum og er sumstaðar um hrein listaverk að ræða. Þessi mikla ljósadýrð léttir mikið á svartasta skammdeginu og veitir jafnt ungum sem öldnum gleði og ánægju og þeir eru margir sem fara í ljósa skoðunarferð um bæinn á kvöldin.
Jólastemningin eykst með hverjum deginum og mikið er um að vera hjá Hornfirðingum, tónleikar og aðrar uppá komur nánast daglega og ekki má gleyma jólasveinunum sem hafa verið duglegir að koma til byggða og taka þátt í jólagleði Hornfirðinga.





Skrifa athugasemd