Meira um jarðgöng
Í kynningu á framkvæmdum við jarðgöng undir Almannaskarð sem Vegagerðin hefur gefið út kemur m.a. fram að göngin verða tvíbreið og 8 m. í þvermál. Vegurinn inn í göngunum verður 6,5 m. breiður með 6,3 m. breiðu slitlagi og verður mesti langhalli 4,7%. Reiknað er með að jarðgangnagerðin taki um 8 mánuði frá upphafi sprengivinnu en að henni lokinni taka við framkvæmdir við lokastyrkingu bergsins og annan frágang.
Heildarverktími er áætlaður eitt ár og er heildarkostnaður framkvæmdanna áætlaður ríflega milljarður króna. Áætlað er að um 82.000 m3 af sprengdu bergi muni falla til við jarðgangagerðina og verður það notað í fyllingar við vegagerðina.
Með tilkomu jarðgangnanna mun vegurinn um Almannaskarð leggjast af en þar er um að ræða brattar skriður með um 16% halla sem er mesti bratti á Hringveginum
Jarðgöng undir Almannaskarð voru borin saman við þann valkost að minnka bratta vegarins með því að lengja skeringu hans til vesturs í skriðunni undir Skálatindum að Friðsæld. Sá kostur hefði valdið afar áberandi ummerkjum í landslagi og þótti því slæmur. Ennfremur hefði hætta á grjóthruni og snjóflóðum verið áfram til staðar og í heild er umferðaröryggi mun meira á jarðgangaleiðinni.





Skrifa athugasemd