Desember
Álfar og hyski á ferð í skóginum í Haukafelli
Álfar og hyski á ferð í skóginum í Haukafelli
Álfar og hyski á ferð í skóginum í Haukafelli (úr myndasafni)

14.12.2003 Desember

Farið út í skóg, jólatré valið og höggvið niður.

Fjöldi hornfirðinga lagði leið sína í skógræktina í Haukafelli í gær, sumir til að velja sér jólatré og höggva sjálfir aðrir til taka þátt í jólastemningunni. Veður var hið fegursta logn og nokkurt frost. Boðið var uppá heitt kakó og kökur og jólasveinarnir Stúfur og Gáttaþefur mættu eldhressir á svæðið ásamt ýmsu hyski sem býr í Fláfjalli.
Þetta er í fyrsta sinn sem hornfirðingum gefst kostur á að fara og velja sér jólatré í Haukafelli og fella þau sjálfir.

Skógræktarfélag Austur Skaftafellssýslu á skógræktarsvæðið í Haukafelli og sagði Rannveig Einarsdóttir að þetta allt hefði tekist alveg frábærlega vel og fólk verið í jólaskapi. Við mætum hér fyrir næstu jól, veljum jólatré og skemmtum okkur jafn vel og í dag sagði Rannveig og bætti við að þá yrði komið nýtt hús á staðinn og aðstaðan miklu betri.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica