Desember
Borað eftir heitu vatni á Hala (úr myndasafni)
Borað eftir heitu vatni á Hala (úr myndasafni)

12.12.2003 Desember

Verður Hornafjörður heitt svæði?

Allt útlit er á að Hornafjörður verði ekki lengur talinn með ,,köldu svæðum“ landsins því núna í vikunni var byrjað að bora eftir heitu vatni í Hoffellslandi. Byrjað var að bora á stað sem heitir Arnarbæli, um 300 metrum frá Hoffellsbæjunum og er útlit á góðum árangri. Við erum að bora þarna 6-700 metra tilraunaholu og vonumst til að hitta á vatnsæð með nægjanlegu vatni fyrir hitaveitu sagði Helgi Már Pálsson.
Þarna eru líkur á nægjanlega miklu vatni, yfir 70 gráðu heitu til hitaveitu fyrir Höfn og Nes.

Ef þetta reynist rétt, nægt vatn og þetta hitastig segir Helgi Már að næsta skref sé að bora vinnsluholu, en það er framkvæmd uppá um eða yfir 100 milljónir kr.
Þetta eru lokin á rannsóknum sem staðið hafa í nokkur ár og við höfum fengið rannsóknarstyrki frá ríkinu á síðustu árum og t.d. fengum við þennan eina styrk sem úthlutað var á þessu ári, þar sem þetta var álitinn góður kostur.

Á síðasta ári var styrkurinn 3 millj. kr og á móti honum lögðu Sveitarfélagið Hornafjörður og Rarik eina og hálfa mkr. hvor til verkefnisins og sömu upphæð á þessu ári. Allt er í óvissu með framhald á þessum styrkveitingum, allavega er stopp á þeim í bili.
Framhaldið segir Helgi Már að fari eftir hvað menn séu áhugasamir um þessar hitaveituframkvæmdir og hvernig gangi að fá fjármagn til þeirra. Ef vel gengi gæti þetta gerst á nokkrum árum. Verktaki við borunina er Jarðboranir ehf og tekur verkið um tvær vikur, síðan verður fylgst með hitastigi vatnsins næstu vikur, áður en endanlegur árangur liggur fyrir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica