Desember
Olgeir Jóhannesson
Olgeir Jóhannesson

12.12.2003 Desember

Kiwanismenn selja jólatré

Á morgun laugardag mun Kiwanisklúbburinn Ós hefja sína árlegu sölu á jólatrjám. Að þessu sinni mun salan fara fram við húsið að Hafnarbraut 23, þar sem Tippstofa Sindra er til húsa. Að sögn Olgeirs Jóhannessonar, Kiwanisfélaga, er þetta ein af aðal fjáröflunum Kiwanisklúbbsins og öllum ágóða af sölunni er varið til líknarmála hér í sýslunni. Við verðum með söluna í gangi til jóla og vonandi seljast öll trén hjá okkur þetta árið.

Fyrir jólin í fyrra náðum við ekki að selja öll trén, enda fengum við samkeppni frá Krónunni og því varð afraksturinn heldur rýr. Það sama virðist vera upp á teningnum fyrir þessi jól, og ef við lendum aftur í því að þurfa að gefa tré á áramótabrennuna þá mun þessi fjáröflunarleið okkar líða undir lok sagði Olgeir að lokum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica