Línubátar með góðan afla
Árið 1999 varð Skinney-Þinganes hf til með sameiningu þriggja fyrirtækja á Höfn og er heildarframleiðsla fyrirtækisins á þessu fimm ára tímabili orðin yfir 50.000 tonn. Í morgun fögnuðu starfsmenn fyrirtækisins á Höfn því að búið væri að frysta 10.000 tonn af uppsjávarafurðum á þessu ári, en heildarframleiðslan á árinu er að nálgast 15.000 tonn, en það er örlítið minna en heildarframleiðslan var samanlagt árin 1999 og 2000.
Torfi Friðfinnsson á Hafnarvoginni sagði að margir bátar héðan væru á sjó í dag. Línubátar sem loksins komust á sjó í morgun eru að koma með góðan afla á land, upp í tvö og hálft tonn af þorski og eitthvað af ýsu.
Ásgrímur Halldórsson SF-250 er að leita að síld á Bakkaflóa.





Skrifa athugasemd