Desember
Hlaup í Hólmsá (úr myndasafni)
Hlaup í Hólmsá (úr myndasafni)

11.12.2003 Desember

Rúmt ár liðið frá flóðunum í Hornafirði

Rúmlega eitt ár er liðið frá því að stórflóð og jökulhlaup komu í allar jökulár í Hornafirði. Árnar flæddu yfir stór svæði með miklum leirframburði og voru margar sem hafsjór yfir að líta. Til að fræðast um afleiðingar flóðanna á gróið land var leitað til Þrúðmars bónda í Miðfelli sem hefur haft umsjón með landgræðslu í sýslunni. Þrúðmar segir að ekkert hafi verið unnið að uppgræðslu á þessum svæðum því þetta grói á 2-3 árum ef það fær frið og það hafi ekki orðið landrof.

Volaselsland í Lóni fór verst út úr flóðunum og þar varð varanlegur skaði. Farvegur og botn Laxár hækkaði mikið og meðal grunnvatnsstaða hækkaði á landinu neðan við Volasel þannig að tún ,um 20 ferkm.sem eru þar skemmdust varanlega og líkur á að ekki verði hægt að nýta þau í framtíðinni og segir Þrúðmar að þarna sé orðin mikil flóðahætta frá Laxá sem geti farið þarna óhindrað yfir.

Þrúðmar segir að nú séu menn að fara að sjá fyrir endann á því mikla landgræðslustarfi sem unnið hefur verið á 44 ferkm. svæði í og við Skógey. Gróður á Skógeyjarsvæðinu kom vel út í sumar en vel þarf að fylgjast með þessu svæði eftir að uppgræðslu lýkur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica