Knattspyrna í skammdeginu
Leikmenn Sindra í 2. flokki karla tóku þátt í Íslandsmótinu innanhúss s.l. sunnudag, en leikið var á Egilsstöðum. Strákarnir léku 4 leiki og unnu einn en töpuðu þremur og enduðu í fjórða sæti í sínum riðli. 5. flokkur karla lék á laugardaginn einnig í Íslandsmótinu og var leikið á Egilsstöðum og enduðu strákarnir í þriðja sæti af 7 liðum í sínum riðli. 3. flokkur kvenna lék s.l. sunnudag á Íslandsmótinu innanhúss og var leikið á Fáskrúðsfirði, stelpurnar enduðu í neðsta sæti í sínum riðli.
Á Tippstofu Sindra ræður Gestur Halldórsson ríkjum og sagði hann að stefnt væri á að selja 400.000 raðir á þessu ári í getraunum. Gestur vildi hvetja áhugasama tippara til að mæta á Tippstofuna á laugardögum og tippa í gegnum tölvu Sindra. Sindri fær 38% af sölunni sem fer í gegnum tölvuna hjá Tippstofunni, en aðeins 20% af sölu með öðrum hætti. Tekjur knattspyrnudeildar af getraunum verða ekki undir 1.500.000 á þessu ári sagði Gestur og eru það margfaldar tekjur áranna á undan.





Skrifa athugasemd