Desember
Smábátar við bryggju
Smábátar við bryggju

10.12.2003 Desember

Ásgrímur Halldórsson einn á veiðum

Ásgrímu Halldórsson SF-250 er einn eftir á síldveiðum af skipum Skinney-Þinganess og hefur leitað síldar útaf austurlandi, en er nú á Norðfirði. Alvarlegt slys varð um borð í Ásgrími Halldórssyni í gær er skipið var á veiðum. Skipverjinn sem slasaðist var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur og er á gjörgæsludeild.

Jóna Eðvalds SF-200 landaði síðasta farmi sínum á þessari vertíð s.l. mánudag, 380 tonnum. Hún fer nú í vélarupptekt í Hafnarfirði. Á mánudaginn var skipað út 150 tonnum af síldarflökum og 60 brettum af saltfisk í M/V Florindu.  

Það er því að róast yfir veiðum og vinnslu, enda styttist í jólin og næg verkefni framundan á heimilum fólks.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica