Desember
Kveikt á jólatrénu
Í gær var kveikt á jólatré Hornafjarðar við hátíðlega athöfn í Tjarnarlundi við íþróttahús. Fjöldi fólks var við athöfnina og var margt til skemmtunar. Flutt var ávarp og hugvekja, sungið og leikið. Lína Langsokkur mætti óvænt á svæðið og skemmti krökkunum og þrír galvaskir jólasveinar þeir Gluggagægir, Stekkjastaur og Kertasníkir komu í heimsókn og sungu og spjölluðu við börn sem og fullorðna. Veðrið var eins og best verður ákosið og héldu allir sælir og ánægðir heim að athöfn lokinni.
Mikið er búið að skreyta á Hornafirði og hreinlega ljómar bærinn í jólaljósum og fögrum skreytingum. Og greinilegt að Hornfirðingar eru komnir í jólaskap.





Skrifa athugasemd