Samstarf við listahátíð í Reykjavík
Listahátíð í Reykjavík verður gerð að árlegum viðburði og í tengslum við hana á að hefja samstarf við önnur sveitarfélög. Fyrsti samningurinn sem gerður verður við sveitarfélög verður undirritaður á Höfn í dag. Þetta er samningur við Menningarráð Austurlands og Akureyrarbæ og koma fulltrúar frá þeim til að undirrita samninginn. Er hér um tímamótasamstarf að ræða og verður kynnt á fundinum hvaða erlendir listamenn munu heimsækja þessi landssvæði á komandi vori og hvaða alþjóðleg verkefni verða á vegum heimamanna.
Undir samkomulagið skrifa stjórnandi Listahátíðar, Þórunn Sigurðardóttir, menningarfulltrúi Austurlands, Signý Ómarsdóttir og menningarfulltrúi Akureyrarbæjar, Þórgnýr Dýrfjörð. Viðstaddir verða einnig ýmsir af fremstu rithöfundum þjóðarinnar sem staddir eru á Höfn í tilefni af bókakynningu sem var í Pakkhúsinu í gær.





Skrifa athugasemd