Umferðaslys við Núpsvötn
Umferðaslys varð á brúnni yfir Núpsvötn um miðnætti sl.nótt er póstflutningabíll lenti utan í vinnu-rafstöð sem stóð í útskoti á brúnni, bíllinn fór yfir vegriðið og féll 10-12 metra ofaní árfarveginn. Bíllinn kom niður á hjólin í smá vatnslænu, um 30 cm djúpa og mun það hafa orðið ökumanninum til lífs, en að sögn lögreglunnar á Kirkjubæjarklaustri slapp hann alveg ótrúlega vel miðað við aðstæður. Ökumanni tóks að rífa sig lausan úr flakinu og komst hann upp á veg, þar sem hann komst í bíl til bróður síns sem hafði verið rétt á eftir honum á flutningabíl og höfðu þeir samband við neyðarlínuna.
Við vorum kallaðir út rétt eftir miðnætti sagði lögreglan á Klaustri og fórum á slysstað ásamt lækni og sjúkrabíl og var ökumaður strax fluttur til Reykjavíkur. Við fórum svo ásamt brúarvinnumönnum sem voru þarna nærri í að týna saman póstinn sem var þarna um allt, þetta voru jólapakkar og allskonar póstur sem var á leiðinni til Reykjavíkur frá öllum austfjörðum. Við teljum að náðst hafi að bjarga stæðsta hluta farmsins, því þarna var ís á vatninu og ekki straumur þar sem bíllinn kom niður.
Farmur bílsins var kominn í hús hjá lögreglunni um kl. fimm í morgun og von var á póstmönnum austur í dag að sækja póstinn og einnig kemur flutningabíll eftir bílflakinu.
Brúarvinnuflokkur hefur undanfarið verið með framkvæmdir við brúna og var verið að setja álplötur á timburklæðninguna á brúargólfinu. Rafstöð sem notuð er við verkið stóð í austasta útskotinu á brúnni og var vel merkt.





Skrifa athugasemd