Rok og rigning
Þá er snjófölið farið, úti er rok og rigning og ekkert nema jólaljósin og dagatalið sem gefa til kynna hvað stutt er til jóla. Í Akurnesi var kl. 6:00 í morgun sunnanátt, 9 m/s og mikil rigning. Veðurspáin gerir ráð fyrir sunnan 8 – 13 m/s í dag. Vestan 5 – 10 m/s síðdegis og minni rigningu en síðan vaxandi suðvestanátt í nótt og hiti á bilinu 2 – 8 stig. Næstu daga má gera ráð fyrir úrkomu og góðum hita miðað við árstíma.
Greiðfært er frá Höfn til Reykjavíkur og hálka sem var að hrella bílstjóra á leiðinni er horfin. Við Kvísker var SSV 8 m/s um kl. 8:00 og á sama tíma var SSV 2 m/s við Lómagnúp og S 2 m/s á Mýrdalssandi. Við Hvalnes var SV 14 m/s.





Skrifa athugasemd