Töpuðu ekki leik
Sindraskvísur tóku um helgina þátt í Íslandsmótinu innanhúss, þar sem þær leika í 2. deild. Þrátt fyrir að tapa ekki leik á mótinu dugði það þeim ekki til að lyfta sér upp í 1. deild. Jafntefli gegn Gróttu, Aftureldingu og ÍR og 2 – 0 sigur gegn KS er glæsileg frammistaða og lofar góðu um framhaldið. Fyrir mótið skiptu tveir leikmenn yfir í Sindra. Karítas Þórarinsdóttir, uppalin Sindraskvísa skipti úr KR og Petra Fanney Bragadóttir markmaður skipti úr ÍBV, en hún hefur einnig leikið með KR. Vonandi verða báðir þessir leikmenn hjá Sindra á komandi sumri enda engin vafi að þær koma til með að styrkja hópinn.
Hjá mfl. karla er það helst að frétta að Kjartan Páll Þórarinsson markvörður Sindra hefur tilkynnt félagaskipti yfir í ÍR. Stjórn knd. er þessa dagana að leita að arftaka Kjartans og skýrast þau mál vonandi sem fyrst.





Skrifa athugasemd