Desember
Jón bakari í Miðbæ
Í dag var opnaði nýtt bakarí á gömlum grunni í Miðbæ. Það eru hjónin Jón B. Finnsson og Margrét Ingólfsdóttir sem keypt hafa Brauðgerð KASK og opnuðu í dag undir nafninu Jón bakari, Hornabrauð ehf. Jón er bakari og hefur stýrt rekstri Brauðgerðar KASK í mörg ár og því þaulkunnugur rekstri sem þessum. Aðspurður sagði Jón að ekki væru uppi áform um stórkostlegar breytingar á rekstrinum, en auðvitað breytist alltaf eitthvað með nýjum eigendum.
Í tilefni dagsins verður boðið upp á kaffi, djús og smákökur hjá Jóni bakara í dag.





Skrifa athugasemd