Desember
Starfsfólk Martölvunnar
Starfsfólk Martölvunnar

01.12.2003 Desember

Martölvan flytur í Miðbæ

Martölvan opnaði verslun sína í Miðbæ á laugardaginn. Stefán Brandur Jónsson hefur ásamt eiginkonu sinni Sigríði Kristinsdóttur rekið verslun og tölvuþjónustu á Bugðuleiru 6. Martölvan hefur á boðstólum t.d. tölvubúnað, síma, hljómtæki, sjónvörp og einnig tekið við þeim rafmagnsvörum sem Kask verslaði með. Sigríður var að vonum alsæl með nýju aðstöðuna og viðtökurnar í Miðbæ.

Viðgerðarverkstæði Martölvunnar verður áfram á Bugðuleirunni. Martölvan heldur upp á fimm ára afmæli sitt á þessu ári. Með komu Martölvunnar í Miðbæ eru komnar verslanir og þjónustufyrirtæki í öll pláss á neðri hæðinni.
Miðbær er kominn í jólabúning og þar var margt um manninn um helgina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica