Ríki Vatnajökuls - Nóvember
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Nú geta hornfirðingar fellt sín jólatré sjálfir
      <description>Sunnudaginn 14. desember gefst Hornfirðingum kostur á að fara í skógræktarsvæðið inni í Haukafelli velja sér jólatré og fella það sjálfir. Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri hjá Suðurlandsskógum segir að búið sé að merkja þau tré sem megi höggva og sé þau frá hálfum metir uppí fjögurra metra há. Þetta er sitkagreni og stafafura einnig verður hægt að fá bæði furu og birkigreinar.  Ekki er búið að ákveða verð á trén ennþá en það verður í samræmi við markaðsverð á jólatrjám.</description>
Stækka vélasal
      <description>Nú er unnið við stækkun á vélasal Skinney-Þingness og að þeirri framkvæmd lokinni færast frystivélarnar sem staðsettar hafa verið í gámum við hráefnistankana í hús. Eftir flutninginn verða vélarnar keyrðar með rafmótorum í stað díselvéla. Áætlað er að verkinu ljúki í vor og er aðalverktaki við bygginguna Sveinn Sighvatsson.</description>
Hálkan á undanhaldi
      <description>Hálkan sem hefur verið að hrella ökumenn á Hornafirði síðustu daga er heldur á undanhaldi. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni sagði að þokkaleg færð væri suðurum að Kirkjubæjarklaustri. Þar fyrir sunnan er mun meiri hálka. Mikil hálka er í Lóni.
Að sögn Lögreglunnar á Höfn hafa ekki orðið óhöpp vegna hálkunnar utan bílveltu sem varð í Öræfum á þriðjudagskvöld.</description>
Ármann Smári á toppnum
      <description>KSÍ hefur uppfært og gefið út afreksstuðla leikmanna. Einn Hornfirðingur, Ármann Smári Björnsson sem nú er leikmaður FH er í stuðli 7, sem er næst hæsti stuðulinn og samkvæmt því er kappinn metin á 490.000 kr. Ármann er þarna í góðum félagsskap og má t.d. nefna  Ólaf Örn Bjarnason, Grindavík, Julian Johnsson, ÍA, Helga Val Daníelsson, Fylki, Hauk Inga Guðnason, Fylki og Gunnlaug Jónsson, ÍA. Engin leikmaður fellur undir stuðulinn 10 og er Ármann Smári því í hópi ellefu leikmanna sem bera hæsta félagsskiptagjaldið á Íslandi.</description>
      <alt>Ármann Smári</alt>
Jólaverslun byrjuð
      <description>Jólaskreytingum á Höfn fjölgar nú dag frá degi og snjófölið gerir sitt til að gera umhverfið jólalegt.Verslunareigendur eru komnir í jólaskap, búnir að skreyta verslanir sínar og taka upp jólavörurnar. Nína í Bláa blóminu í Miðbæ sagði að jólasalan væri að byrja og skellur á fyrir alvöru um helgina þegar aðventan byrjar. Hún vill sjá að fleiri versli í heimabyggð og segir að oft sé verð hagstæðara úti á landi en í sérverslunum í Reykjavík, en því miður fara alltof margir þangað til að gera jólainnkaupin. Salan í Verslun Efnalaugar Dóru er búin að vera góð það sem af er vikunni enda allt fullt af jólavörum, sem sagt jólasalan komin í gang hjá Dóru.</description>
Mikill hugur í Sindraskvísum
      <description>Næstu helgi verður mikið um að vera hjá Sindraskvísum en þá taka þær þátt í Íslandsmótinu í innanhúss knattspyrnu í 2. deild C riðli. Þar mæta þær Fjölni, ÍR og Gróttu. Mikill hugur er í stelpunum og vonandi tekst þeim jafn vel upp og mfl. karla um seinustu helgi. Ýmisleg heyrist skrafað um félagaskipti úr Sindra, bæði mfl. karla og kvenna og mörg lið að skoða hornfirska leikmenn. Slæmt mál ef margir leikmenn yfirgefa Sindra, en samt eðlilegt að leikmenn skoði hvað sé í boði hjá öðrum liðum.</description>
Síldveiðimet hjá Skinney-Þinganesi
      <description>Mestum síldarafla á þessari vertíð hefur verið landað hjá  Skinney-Þinganesi á Hornafirði 14.500 tonnum. Um helmingur aflans hefur farið í bræðslu. Síldin hefur flokkast í smáa og milli stærð en ekkert veiðist af stórri síld. Skinney-Þinganes er með þrjú skip á síldveiðum, Ásgrím Halldórsson, Jónu Eðvalds og Steinunni og hefur afli skiptist nokkuð jafnt á skipin. Mesti afli sem komið hefur á einum degi er 1800 tonn , þá lönduðu öll skipin sama daginn. Veiðisvæði hafa verið allt í kring um landið og síðustu nætur hefur síldin veiðst hér fyrir austan.</description>
Borað eftir sjó
      <description>Skinney-Þinganes er þessa dagana að láta jarðbor frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða bora holur í Álaugarey og í Heppuna. Okkur vantar sjó  til að fleyta loðnuhrognum, sagði Gunnar Ásgeirsson í Skinney, og við ætlum að kanna hvort hægt er að ná í nægilegt magn af sjó. Sjór hefur ekki  fundist ennþá  en þetta er ekki fullreynt. Búið er að bora eina holu í Heppuna, tvær við klettana í  Álaugarey að sunnanverðu og verið að byrja á þeirri þriðju.</description>
Landbrot að meðaltali um 4 – 8 metrar á ári
      <description>Vegna viðvarandi landbrots við Jökulsárlón hefur um alllangt skeið verið fylgst náið með breytingum sem orðið hafa af völdum sjávargangs á svæðinu. Ef svo heldur fram sem horfir mun innan fárra ára vegi og raflínu stafa nokkur hætta af landbrotinu og er þar einkum átt við svæðið frá Jökulsá til austurs á um kílómeters löngum kafla..
Frá árinu 1991 til dagsins í dag hefur Vegagerð ríkisins staðið fyrir árlegum mælingum á umfangi landbrotsins og í þeim mælingum kemur fram að landbrot er að meðaltali um 4 – 8 metrar á ári.Samkvæmt mælingum starfsmanna Landsvirkjunar í mars sl. kom fram að minnsta fjærlægð frá línuundirstöðu að sjávarkambi er við stæðu nr.241 en þar mældist fjærlægð 42 metrar.</description>
Holudúfa á Hala í Suðursveit
      <description>Holudúfa sást á Hala í Suðursveit fyrir helgina og segir Björn Arnarson fuglaskoðunarmaður að þetta sé í fyrsta sinn sem holudúfa sést hér á landi svo staðfest sé. Líkur eru á að holudúfa hafi sést á þessum sama stað í sumar en ekki náðist að staðfesta það og telur Björn ekki ólíklegt að þarna sé um sama fugl að ræða og dúfan hafi verið hér á landi síðan í sumar.</description>
Útgáfutónleikar Ómars Guðjónssonar á Hótel Höfn
      <description>Ómar hefur nú þegar látið að sér kveða í íslensku jazzlífi og tók m.a þátt í nýliðinni jazzhátíð í Reykjavík. Nýverið gaf hann út sína fyrstu sólóplötu, Varma land, þar sem með honum leika bróðir hans, Óskar Guðjónsson á saxófóna, Þórður Högnason á bassa og Helgi Svavar Helgason á trommur. Á tónleikunum á Hótel Höfn mun hann kynna diskinn ásamt Óskari, Helga og Jóhanni Ásmundssyni sem mun spila á kontrabassa.</description>
Sindri í 1. deild
      <description>Um helgina var leikið í 2. deild karla í Íslandsmótinu innanhúss. Mfl. Sindra stóð vel fyrir sínu í þeirri keppni og sigraði sinn riðil með fullt hús stiga og tryggðu sér þar með rétt til að leika í 1. deild á næsta ári. Sindri vann Reynir Sandgerði 6 – 4, Leiknir Reykjavík voru lagðir 2 – 1 og í lokaleiknum var lið Selfoss lagt 5 – 2. Vonandi er þessi árangur aðeins byrjunin á nýjum uppgangstíma hjá mfl. karla og haldi liðið áfram á sömu braut geta menn farið að hlakka til sumarsins. Til hamingju með þetta strákar.</description>
Bílbeltanotkun sýnir þroska
      <description>Lögreglan á Hornafirði  hefur undanfarið fylgst með bílbeltanotkun bæjarbúa en eins og fram kom í skoðun umferðaröryggisfulltrúa á austur-og suðausturlandi síðast í júlí í sumar var útkoman verst á Hornafirði þar sem aðeins 58 %  þeirra 260 ökumanna sem voru stöðvaðir voru með beltin spennt.</description>
Norræna skólahlaupið 2003
      <description>Nemendur Hafnar- og Heppuskóla tóku þátt í "Norræna skólahlaupinu" í dag með því að hlaupa allt frá 2,5 til 10 km. innan Hafnar. Hlaupið fer nú fram á öllum Norðurlöndunum á tímabilinu 15. september til 1. desember. Þetta er í 19. skiptið sem Ísland tekur þátt í þessu samnorræna hlaupi og hefur frammistaða Íslends verið mjög góð miðað við frændþjóðir okkar, þar sem allt að því helmingur nemenda í grunnskólum landsins hafa hverju sinni tekið þátt í hlaupinu.</description>
Félagsvinurinn
      <description>Ungmennafélag Öræfinga er 70 ára á þessu ári og heldur upp á afmælið með því m.a. að gefa út bókina Félagsvinurinn. 
Félagsvinurinn kom út á árunum 1937-1962 og var hann allur handskrifaður, sextíu og átta stílabækur sem allar hafa varðveittst óskemmdar. Hann var skrifaður til upplestrar á ungmennafélagsfundum og komu út tvö til þrjú rit á ári að jafnaði. Bækurnar voru ekki lánaðar út heldur eingöngu lesnar á fundum. Nú kemur Félagsvinurinn út í tveimur bindum alls 700 bls. með völdu efni úr upphaflegu útgáfunni.</description>
Tónlist fyrir alla
      <description>Í dag fjölmenna grunnskólanemar í Hornafirði í Hafnarkirkju. Þar verður boðið upp á dagskrá sem ber nafnið “Tónlist fyrir alla”. Tilgangurinn með þessari tónlistarkynningu er að kynna ólíkar tegundir tónlistar fyrir grunnskólanemum. Dagskráin á þessu hausti ber yfirskriftina “Tvær flautur og gítar” og eru flytjendur þau Guðrún S. Birgisdóttir og Martial Nardeau flautuleikarar og Pétur Jónasson gítarleikari. Einnig taka grunnskólanemarnir þátt í dagskránni.</description>
Kröfugerð ríkisins byggir á Landnámu
      <description>Við erum sáttir svona í meiginatriðum segir Örn Bergsson bóndi á Hofi í Öræfum þegar hann var spurður hvað landeigendum finndist um dóminn í þjóðlendumálinu. Menn eru ánægðir með að þessari aðför að landeigendum sé hrundið og ég held að ríkið ætti að sjá sóma sinn í að læra að fara með öðrum hætti í þetta mál, hætta þessari heimskulegu kröfugerð í þinglýstar eignir bænda. Kröfugerð ríkisins byggir á Landnámu sem skrifuð var 300 árum eftir landnám og fræðingar telja svona goðsagnir. Það er með ólíkindum að þetta skuli vera notað, en krafan er nær eingöngu byggð á Landnámu, að þetta land hafi ekki verið numið sem þeir gera kröfur í segir Örn.</description>
VÍS í Miðbæ
      <description>Nú þegar verslunarmiðstöðin Miðbær er rétt rúmlega tveggja ára bætist enn eitt fyrirtækið við í þetta glæsilega verslunar- og þjónustuhús. Í dag kl. 12:30 opnaði Vátryggingarfélag Íslands þjónustuskrifstofu sína í verslunarmiðstöðinni en skrifstofan var áður til húsa í Landsbanka Íslands. Hið nýja húsnæði VÍS er rúmgott, bjart og aðstaðan öll eins og best verður á kosið. Við opnunina léku nemendur úr Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu nokkur lög og gestum og gangandi var boðið upp á veitingar. Þjónustustjóri Vátryggingafélags Íslands á Hornafirði er Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir.</description>
Olíuleit í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu
      <description>Dagana 17. til 19. nóvember taka nokkrir nemendur FAS þátt í tölvuleiknum Xplore og keppa þar við kollega sína frá Skotlandi, Danmörku, Noregi og Færeyjum. Keppninni er stjórnað frá Færeyjum og þaðan koma líka flest liðin, en alls munu um 100 lið með 300 nemendur taka þátt í keppninni. Fimmtán nemendur í fimm liðum koma frá FAS og sér Hjördís Skírnisdóttir kennari í FAS um framkvæmdina í skólanum. Að sögn nemenda sem taka þátt í keppninni er þetta skemmtileg reynsla og mikið fjör.</description>
Fálkinn dó í svæfingu
      <description>Fálkinn sem í haust var komið með á byggðasafnið á Höfn, særðan á væng og var í góðu yfirlæti og hjúkrun hjá Birni Arnarsyni safnverði, var í vetur sendur til Reykjavíkur til læknismeðferðar. Ekki tókst að lækna fálkanum því hann þoldi ekki svæfinguna og dó. Björn brá sér í fuglaskoðunarferð um helgina og segir hann að óvenju mikið sé búið að vera af smyrli í haust og eins fálkum. Fálkar hafa stundum sést hér á veturna en þessir sem hafa verið hér undanfarið eru ungfuglar sem flækjast um. Farfuglar eru flestir farnir til vetrarstöðva sinna.</description>
Alþjóðadagur langvinnrar lungnateppu
      <description>Heilbrigðisstofnun Suðausturlands bíður almenningi að koma í öndunarmælingu á heilsugæslunni á morgun miðvikudag, en þá er alþjóðadagur langvinnrar lungnateppu. Langvinn lungnateppa er algengur og alvarlegur lungnasjúkdómur, og eru margir haldnir þessum alvarlega kvilla án þess að gera sér grein fyrir því. Mælingarnar fara fram milli kl. 9 - 11 og 13 - 15. Ekki þarf að panta tíma né borga fyrir þessar mælingar. Starfsfólk HSSA vonast eftir því að sem flestir líti við og skelli sér í öndunarmælingu.</description>
Mikið af síld á leið til Hornafjarðar
      <description>Ágæt síldveiði hefur verið í Kolluál, út af Faxaflóa. Ásgrímur Halldórsson SF 200 er væntanlegur til hafnar kl. 14:00 í dag með fullfermi. Jóna Eðvalds SF 20 og Steinunn SF 10 sem einnig voru að veiðum í Kolluál, lögðu af stað af miðunum í nótt, bæði skipin eru með fullfermi. Það er því von á rúmum 1.800 tonnum af síld næsta sólarhringinn til Hornafjarðar, þannig að næg vinna er framundan hjá Skinney-Þinganes.</description>
Ferðaklúbburinn 4x4 á Hornafirði
      <description>Miðvikudaginn 12. nóvember s.l. var boðað til kynningar- og eða stofnfundar Hornafjarðardeildar ferðaklúbbsins 4x4. Rúmlega 30 manns mættu á fundinn og hlýddu á Kjartan Gunnsteinsson formann landsamtakanna og Hallgrím Óla formann Húsavíkurdeildar 4x4 kynna starfsemi ferðaklúbbsins. Í framhaldi af framsögum þeirra félaga var ákveðið að stofna deild innan Ferðaklúbbsins 4x4 á Hornafirði. Kosin var fimm manna stjórn og var formaður kjörinn Þorkell Kolbeins. Aðrir í stjórn eru Sigurjón Einarsson, Árni Pétur Hilmarsson, Jón Bragason og Sveinbjörn Steinþórsson.</description>
“Þetta er allt vitleysa Snjólfur”
      <description>Leikhópurinn Lopi fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir. Fyrsta frumsýning Lopa var haustið 1993 er frumsýnt var leikritið Skólalíf. Síðan þá hefur Leikhópurinn sýnt 13 sýningar og frumsýning Leikhópsins núna er 14. sýning hópsins. Allar sýningarnar  hafa verið íslensk leikverk og hafa 9 af 14 verið frumsamdar fyrir Leikhópinn.
Leikhópurinn Lopi sýnir að þessu sinni leikritið “Þetta er allt vitleysa Snjólfur” og er höfundur verksins Guðjón Sigvaldason. Fjallar verkið um unglinga, einelti og ýmislegt er hrjáir ungdóminn. Ástin blómstrar og furðufuglar eru á sveimi.</description>
Upplýsinga- og kynningarfundur um hafrannsóknir- og fiskveiðiráðgjöf
      <description>Á undanförnum árum hefur Hafrannsóknastofnunin unnið markvisst að því að efla miðlun upplýsinga um rannsóknir stofnunarinnar á umhverfi hafsins og ástandi fiskstofna við landið með það markmið að efla umræðu um skynsamlega nýtingu auðlindarinnar. Í þessum tilgangi var efnt til skipulagðra funda allt í kringum landið árið 2001 þar sem málin voru rædd og skipst á skoðunum. Árin 2001 og 2002 tóku starfsmenn stofnunarinnar þátt í Fyrirspurnaþingi sjávarútvegsráðuneytisins um þorskrannsóknir sem einnig var ætlað að stuðla að upplýstri umræðu um þessi mál.</description>
Stolt af fósturbörnunum
      <description>Hún var greinilega stolt og hreykin af fósturbörnum sínum, hvíta ærin frá Brekkubæ við réttirnar í haust. Fósturbörnin eru tveir kiðlingar sem urðu móðurlausir nýfæddir og því var gripið til þess ráðs að venja þá undir á, sem hafði misst lömb sín. Kristín Einarsdóttir á Brekkubæ í Nesjum hefur átt nokkrar geitur í mörg ár og í vor fótbrotnaði ein geitin hennar það illa að aflífa þurfti hana frá tveim nýfæddum kiðlingum. Það tók smá tíma að fá ána til að taka þessi fósturbörn að sér, en allt gekk þetta vel og hélt hún sig inn til fjalla í sumar með kiðlingana sína. Eftir réttir héldu ærin og kiðlingarnir aftur til fjalla og eru þar ennþá.</description>
Meiri afli á land
      <description>Fyrstu tvo mánuði fiskveiðiársins 2003-2004 hefur verið landað á Hornafirði samtals 10.045 t. sem er aukning upp á 2.361 t. miðað við sama tímabil á s.l. ári. Mest munar um 1.023 t. aukningu á síld og 824 t. aukningu í þorski. Fleiri ýsur skila sér líka á land á þessu hausti, og er aukning þar upp á 179 t. Ufsinn er ekki jafn viljugur á miðunum það sem af er og hefur verið landað 43 t. minna af þessum eðalbláa fiski fyrstu tvo mánuði fiskveiðiársins.</description>
Með fullfermi á leið til Hornafjarðar
      <description>Ásgrímur Halldórsson SF 250 er væntanlegur til Hornafjarðar í kvöld, með fullfermi af ágætri síld og hefst vinnsla hjá Skinney-Þinganes í kvöld. Jóna Eðvalds SF 200 kemur til löndunar á morgun, einnig með fullfermi. Það eru því væntanleg 1.400 – 1.500 tonn af síld næsta sólarhringinn. Aflann fengu skipin í Kolluál. Steinunn SF 10 er á miðunum fyrir austan land og var engin veiði hjá þeim í nótt.</description>
Ekki nægilegt viðurværi úr firðinum
      <description>Nokkuð hefur verið rætt um þann mikla fjölda álfta sem verið hefur á Suðausturlandinu í vor og sumar og hafa bændur áhyggjur af enn frekari fjölgun þeirra og á því tjóni sem þær valda. Sveinn Gunnarsson bóndi í Vík í Lóni segir að þar hafi verið óhemju mikið af álftum í vor og sumar og þær sækja stíft í túnin. Þær hafa valdið miklum skaða á túnum hér í Vík og oft hafa verið þar allt að hundrað álftir í einu. Þetta er verst þegar gróðurinn er að koma upp á vorin og þó reynt sé að reka þær burtu er maður varla kominn heim þegar hópurinn er kominn aftur segir Sveinn. Þetta er sérstaklega áberandi þegar stórstreymt er og hátt í lóninu, þá ná þær verr gróðrinum á botninum og eru svangar.</description>
Búið að úthluta byggðakvóta
      <description>Fiskistofa hefur nú lokið við að úthluta aflaheimildum til fiskiskipa hjá þeim sveitarfélögum sem ekki skiluðu inn neinum tillögum. Eins og áður hefur komið fram ákvað Sveitarfélagið Hornafjörður að leggja ekki fram tillögu um skiptingu þeirra heimilda sem komu í hlut sveitarfélagsins og hefur því Fiskistofa úthlutað þessum 26,3 t. sem komu í hlut Hornfirðinga á eftirfarandi hátt:</description>