Nú geta hornfirðingar fellt sín jólatré sjálfir
Sunnudaginn 14. desember gefst Hornfirðingum kostur á að fara í skógræktarsvæðið inni í Haukafelli velja sér jólatré og fella það sjálfir. Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri hjá Suðurlandsskógum segir að búið sé að merkja þau tré sem megi höggva og sé þau frá hálfum metir uppí fjögurra metra há. Þetta er sitkagreni og stafafura einnig verður hægt að fá bæði furu og birkigreinar. Ekki er búið að ákveða verð á trén ennþá en það verður í samræmi við markaðsverð á jólatrjám.
Skógræktarfélag Austur Skaftafellssýslu á skógræktina í Haukafelli og stendur fyrir þessari skemmtilegu jólatréssölu. Það hefur verið mjög mikill vöxtur í skógræktinni í Haukafelli segir Rannveig og nauðsynlegt að grisja trén svo okkur fannst þetta tilvalið að skapa skemmtilega jólastemningu fyrir fjölskyldur og þá sem vilja koma. Búast má við óvæntum uppákomum í jóla-skóginum því stutt er í Fláfjall, jólasveinafjall þeirra Mýramanna og ekki vitað hvað þaðan kann að koma.
Rannveig hvetur alla unga sem aldna að koma í Haukafellið þann 14.des. og taka þátt í notalegri stemningu í jólalegu umhverfi.





Skrifa athugasemd