Nóvember
Stækka vélasal
Nú er unnið við stækkun á vélasal Skinney-Þingness og að þeirri framkvæmd lokinni færast frystivélarnar sem staðsettar hafa verið í gámum við hráefnistankana í hús. Eftir flutninginn verða vélarnar keyrðar með rafmótorum í stað díselvéla. Áætlað er að verkinu ljúki í vor og er aðalverktaki við bygginguna Sveinn Sighvatsson.
Í gær landaði Ásgrímur Halldórsson SF-250 rúmum 260 tonnum og Steinunn SF-10 um 350 tonnum. Jóna Eðvalds SF-200 kom til hafnar í morgun með 240 tonn af síld sem hún fékk á Héraðsflóa.





Skrifa athugasemd