Nóvember
Ármann Smári
Ármann Smári

27.11.2003 Nóvember

Ármann Smári á toppnum

KSÍ hefur uppfært og gefið út afreksstuðla leikmanna. Einn Hornfirðingur, Ármann Smári Björnsson sem nú er leikmaður FH er í stuðli 7, sem er næst hæsti stuðulinn og samkvæmt því er kappinn metin á 490.000 kr. Ármann er þarna í góðum félagsskap og má t.d. nefna Ólaf Örn Bjarnason, Grindavík, Julian Johnsson, ÍA, Helga Val Daníelsson, Fylki, Hauk Inga Guðnason, Fylki og Gunnlaug Jónsson, ÍA. Engin leikmaður fellur undir stuðulinn 10 og er Ármann Smári því í hópi ellefu leikmanna sem bera hæsta félagsskiptagjaldið á Íslandi.

Afrekstuðull er notaður til að ákvarða virði leikmanns ef til félagsskipta kemur. Stuðulinn 10 er hæsti stuðull sem hægt er að fá, síðan kemur stuðull 7, stuðull 5, stuðull 3 og stuðull 1 sem er fyrir alla leikmenn sem ná ekki stuðli 3. Allar konur falla undir stuðul eitt, merkilegt!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica