Nóvember
Nína í Bláa Blóminu komin í jólaskap
Nína í Bláa Blóminu komin í jólaskap
Nína í Bláa Blóminu komin í jólaskap

27.11.2003 Nóvember

Jólaverslun byrjuð

Jólaskreytingum á Höfn fjölgar nú dag frá degi og snjófölið gerir sitt til að gera umhverfið jólalegt.Verslunareigendur eru komnir í jólaskap, búnir að skreyta verslanir sínar og taka upp jólavörurnar. Nína í Bláa blóminu í Miðbæ sagði að jólasalan væri að byrja og skellur á fyrir alvöru um helgina þegar aðventan byrjar. Hún vill sjá að fleiri versli í heimabyggð og segir að oft sé verð hagstæðara úti á landi en í sérverslunum í Reykjavík, en því miður fara alltof margir þangað til að gera jólainnkaupin. Salan í Verslun Efnalaugar Dóru er búin að vera góð það sem af er vikunni enda allt fullt af jólavörum, sem sagt jólasalan komin í gang hjá Dóru.

Guðný í Lóninu segir að jólatraffíkin sé byrjuð, en aðeins seinna en í fyrra og fer rólegra af stað. Það er meira spáð í gagnlega hluti og betri vöru til jólagjafa en áður.
Í Húsgagnavali er þetta svipað og í fyrra og almennt leitað meira að nytsömum vörum.

Króm og Hvítt er núna með helmingi stærri leikfangaverslun en á síðasta ári, og þar er jólasalan að komast á stað á svipuðum tíma og í fyrra.
Sportmiðstöðin flutti úr Þjónustumiðstöðinn á Tjaldstæðinu og sameinaðist Tangó í Miðbæ. Þar er búið að vera mikið að gera undanfarið og jólasalan að fara í gang.
Verslunareigendur voru ekki alveg sammála um hvort fólk verslaði meira í heimabyggð en áður, sumum fannst fleiri versla heima aðrir sögðu að alltof margir færu til Reykjavíkur og versluðu þar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica