Nóvember
Mikill hugur í Sindraskvísum
Næstu helgi verður mikið um að vera hjá Sindraskvísum en þá taka þær þátt í Íslandsmótinu í innanhúss knattspyrnu í 2. deild C riðli. Þar mæta þær Fjölni, ÍR og Gróttu. Mikill hugur er í stelpunum og vonandi tekst þeim jafn vel upp og mfl. karla um seinustu helgi. Ýmisleg heyrist skrafað um félagaskipti úr Sindra, bæði mfl. karla og kvenna og mörg lið að skoða hornfirska leikmenn. Slæmt mál ef margir leikmenn yfirgefa Sindra, en samt eðlilegt að leikmenn skoði hvað sé í boði hjá öðrum liðum.
Eins og áður hefur komið fram er Soffía búin að skipta úr Sindra í Stjörnuna og eru það einu félagsskiptin, enn sem komið er sem staðfest eru af KSÍ.





Skrifa athugasemd