Síldveiðimet hjá Skinney-Þinganesi
Mestum síldarafla á þessari vertíð hefur verið landað hjá Skinney-Þinganesi á Hornafirði 14.500 tonnum. Um helmingur aflans hefur farið í bræðslu. Síldin hefur flokkast í smáa og milli stærð en ekkert veiðist af stórri síld. Skinney-Þinganes er með þrjú skip á síldveiðum, Ásgrím Halldórsson, Jónu Eðvalds og Steinunni og hefur afli skiptist nokkuð jafnt á skipin. Mesti afli sem komið hefur á einum degi er 1800 tonn, þá lönduðu öll skipin sama daginn. Veiðisvæði hafa verið allt í kring um landið og síðustu nætur hefur síldin veiðst hér fyrir austan.
Þetta er heldur meira af síld en við fengum alla vertíðina alveg fram í apríl í fyrra segir Hermann Stefánsson framleiðslustjóri. Aðeins 600 tonn af síld kom í september svo ekkert fyrr en 10.okt. þá fór allt á fullt og er enn. Um 50 manns vinna við síldina og oft hefur þurft að vinna á vöktum allan sólarhringinn til að hafa undan veiði.
Mest af síldinni fer í frystingu og er búið að vinna 3.500 tonn af heilfrystri síld og flökum sem fer aðallega á austur Evrópu og lítilsháttar til Frakklands. Búið er að flaka og salta í 3.500 tunnur en það er síld sem fer að mestu leiti í eigin framleiðslu þ.e. sú síld er marneruð sett í dósir og send til Danmerkur þar sem henni er dreift í Súpermarkaði, þar hefur verið söluaukning svona hægt og sígandi.
Hermann segir að verð fyrir síldina sé ekki hagstætt núna, það hefur lækkað í erlendum gjaldmiðli síðan í fyrra og svo hefur gengi krónunnar verið slæmt ekki síst af því að salan er í dollurum. Haustið hefur verið ágætt hvað þorskveiðina snertir og sagði Hermann það miklu betra en undanfarin haust.





Skrifa athugasemd