Landbrot að meðaltali um 4 – 8 metrar á ári
Vegna viðvarandi landbrots við Jökulsárlón hefur um alllangt skeið verið fylgst náið með breytingum sem orðið hafa af völdum sjávargangs á svæðinu. Ef svo heldur fram sem horfir mun innan fárra ára vegi og raflínu stafa nokkur hætta af landbrotinu og er þar einkum átt við svæðið frá Jökulsá til austurs á um kílómeters löngum kafla..
Frá árinu 1991 til dagsins í dag hefur Vegagerð ríkisins staðið fyrir árlegum mælingum á umfangi landbrotsins og í þeim mælingum kemur fram að landbrot er að meðaltali um 4 – 8 metrar á ári.Samkvæmt mælingum starfsmanna Landsvirkjunar í mars sl. kom fram að minnsta fjærlægð frá línuundirstöðu að sjávarkambi er við stæðu nr.241 en þar mældist fjærlægð 42 metrar.
Hér eru nokkrar niðurstöðutölur mælinga frá númeruðum raflínu-undirstöðum að sjávarkambi sem Vegagerðin lét gera 6.mars 2003 og 13.nóv.sl.
Frá turni nr 240, 6. mars 2003 = 42,8 m 13. nóvember 2003 = 40,2 m
Frá turni nr 241, 6. mars “ = 28,1 m 13. nóv. “ = 25,4 m
Frá turni nr 242, 6. mars “ = 33,5 m 13. nóv “ = 30,9 m.
Frá turni nr 243, 6. mars “ = 46,8 m 13. nóv “ = 44,0 m
Frá turni nr 244, 6. mars “ = 44,9 m 13 .nóv “ = 44,2 m
Árið 1993 mældist fjærlægð frá stæðu 241 að sjávarkambi 77,8 m og hefur því styst um 52,4 m. samkvæmt mælingu Vegagerðarinnar 13.nóv sl.
Í mælingu vegagerðarinnar 13.nóv. kemur fram að frá árinu 1991 er mest landbrot 64,4 m. 1400 metra austan við Jökulsá. Mest rof vestan við Jökulsá á þessu tímabili er 70 metrar á um 200 m. kafla 1200 m. frá ánni. Í sumar voru grjótvarnir settar við bakkana við brúna beggja megin árinnar og þrír grjót-þröskuldar settir í ána. Þetta var gert til þess að tryggja brúna og svæðið í kring um hana og þröskuldarnir til að áin grafi ekki úr botninum og haldi áfram að dýpka eins og verið hefur. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að þessi aðgerð virðist ætla að bera góðan árangur en hún er eingöngu til að styrkja brúna en hefur engin áhrif á landrofið.
Þar sem vegurinn kemur í sveig austan við Jökulsárbrúna er landrof mest og segir Reynir að haldi þessu áfram svo sem verið hefur, komi að því að færa þurfi veginn ofar á sandinn á þessum kafla og þá mun sú aðgerð væntanlega duga í einhverja tugi ára. Landsvirkjun er að skoða færslu á línunni og telur Reynir að það verði sennilega á þessu ári.




Skrifa athugasemd