Nóvember
Sindri ÍBV
Sindri ÍBV (úr myndasafni)
Sindri ÍBV (úr myndasafni)

24.11.2003 Nóvember

Sindri í 1. deild

Um helgina var leikið í 2. deild karla í Íslandsmótinu innanhúss. Mfl. Sindra stóð vel fyrir sínu í þeirri keppni og sigraði sinn riðil með fullt hús stiga og tryggðu sér þar með rétt til að leika í 1. deild á næsta ári. Sindri vann Reynir Sandgerði 6 – 4, Leiknir Reykjavík voru lagðir 2 – 1 og í lokaleiknum var lið Selfoss lagt 5 – 2. Vonandi er þessi árangur aðeins byrjunin á nýjum uppgangstíma hjá mfl. karla og haldi liðið áfram á sömu braut geta menn farið að hlakka til sumarsins. Til hamingju með þetta strákar.

Engin félagaskipti hafa átt sér stað hjá mfl. karla enn sem komið er en ýmsar blikur eru á lofti í þeim málum sem og hjá mfl. kvenna. Einn leikmaður mfl. kvenna hefur tilkynnt félagaskipti en það Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir sem hefur skipt yfir í Stjörnuna í Garðabæ.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica