Nóvember
Hraustir strákar úr Hafnarskóla í Norræna skólahlaupinu
Hraustir strákar úr Hafnarskóla í Norræna skólahlaupinu

21.11.2003 Nóvember

Norræna skólahlaupið 2003

Nemendur Hafnar- og Heppuskóla tóku þátt í "Norræna skólahlaupinu" í dag með því að hlaupa allt frá 2,5 til 10 km. innan Hafnar. Hlaupið fer nú fram á öllum Norðurlöndunum á tímabilinu 15. september til 1. desember. Þetta er í 19. skiptið sem Ísland tekur þátt í þessu samnorræna hlaupi og hefur frammistaða Íslends verið mjög góð miðað við frændþjóðir okkar, þar sem allt að því helmingur nemenda í grunnskólum landsins hafa hverju sinni tekið þátt í hlaupinu.

Með Norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að æfa hlaup og aðrar íþróttir reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan og áhersla á það lögð að allir verði með. Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og einnig hver skólarnir viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins hefur styrkt útgáfu viðurkenningarskjala á myndarlegan hátt og samstarfsaðili að þessu verkefni er einnig Íþróttakennarafélag Íslands.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica