Nóvember
Glæsileg bókarkápa
Glæsileg bókarkápa

20.11.2003 Nóvember

Félagsvinurinn

Ungmennafélag Öræfinga er 70 ára á þessu ári og heldur upp á afmælið með því m.a. að gefa út bókina Félagsvinurinn.
Félagsvinurinn kom út á árunum 1937-1962 og var hann allur handskrifaður, sextíu og átta stílabækur sem allar hafa varðveittst óskemmdar. Hann var skrifaður til upplestrar á ungmennafélagsfundum og komu út tvö til þrjú rit á ári að jafnaði. Bækurnar voru ekki lánaðar út heldur eingöngu lesnar á fundum. Nú kemur Félagsvinurinn út í tveimur bindum alls 700 bls. með völdu efni úr upphaflegu útgáfunni.

Í ritnefnd eru Gunnþóra Gunnarsdóttir blaðamaður, Hafdís Roysdóttir og Sigrún Sigurgeirsdóttir.
Í bókinni eru frásögur, ljóð, almennur fróðleikur, þýddar sögur, þrautir og gamanmál. Góð framsetning og fallegt málfar einkennir Félagsvininn. Höfundarnir eru um 30 talsins, sumir voru afkastameiri við ritstörfin en aðrir. Allir voru þeir félagar í Ungmennafélagi Öræfa og í ritinu eru myndir af þeim vel flestum og smá fróðleikspunktar um þá. Bókin er í fallegri kápu með mynd af málverki eftir Jón Þorleifsson í Hólum.

Ungmennafélag Öræfinga hefur alla tíð verið kraftmikið félag og segir Gunnþóra að á þessum árum hafi allir í sveitinni gengið í félagið þegar þeir urðu 12 ára, það var föst regla, og aldrei gengið úr því aftur, menn gerðust bara ævifélagar sama hvar búseta varð og 60 ára voru menn gerðir að heiðursfélögum.
Öræfingar undirbúa nú bæði afmælis-og útgáfuveislur sem verða væntanlega síðast í þessum mánuði og í byrjun desember.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica