Nóvember
Frá tónleikum í Nýheimum
Frá tónleikum í Nýheimum

20.11.2003 Nóvember

Tónlist fyrir alla

Í dag fjölmenna grunnskólanemar í Hornafirði í Hafnarkirkju. Þar verður boðið upp á dagskrá sem ber nafnið “Tónlist fyrir alla”. Tilgangurinn með þessari tónlistarkynningu er að kynna ólíkar tegundir tónlistar fyrir grunnskólanemum. Dagskráin á þessu hausti ber yfirskriftina “Tvær flautur og gítar” og eru flytjendur þau Guðrún S. Birgisdóttir og Martial Nardeau flautuleikarar og Pétur Jónasson gítarleikari. Einnig taka grunnskólanemarnir þátt í dagskránni.

Upphafið að verkefninu “Tónlist fyrir alla” má rekja til ársins 1992, en Jónas Ingimundarson píanóleikari er brautryðjandi verkefnisins. Þessi kynning á tónlist hefur mælst vel fyrir og er nú svo komið að öllum sveitarfélögum er boðið upp á þessa skólatónleika, fyrir utan þau sveitarfélög sem þegar eru með öflugt skólatónleikahald á eigin vegum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica