VÍS í Miðbæ
Nú þegar verslunarmiðstöðin Miðbær er rétt rúmlega tveggja ára bætist enn eitt fyrirtækið við í þetta glæsilega verslunar- og þjónustuhús. Í dag kl. 12:30 opnaði Vátryggingarfélag Íslands þjónustuskrifstofu sína í verslunarmiðstöðinni en skrifstofan var áður til húsa í Landsbanka Íslands. Hið nýja húsnæði VÍS er rúmgott, bjart og aðstaðan öll eins og best verður á kosið. Við opnunina léku nemendur úr Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu nokkur lög og gestum og gangandi var boðið upp á veitingar. Þjónustustjóri Vátryggingafélags Íslands á Hornafirði er Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir.
Nú líður senn að því að götumynd Miðbæjar komist í endanlegt horf. Um næstu mánaðarmót mun Martölvan opna verslun í húsinu og eru þá öll verslunarrými í húsinu fullnýtt.





Skrifa athugasemd