Nóvember
Nemendu FAS leita að olíu
Nemendur FAS leita að olíu
(úr myndasafni) Nemendur FAS leita að olíu þegar nokkrir nemendur FAS tóku þátt í tölvuleiknum Xplore og kepptu þar við kollega sína frá Skotlandi, Danmörku, Noregi og Færeyjum.

19.11.2003 Nóvember

Olíuleit í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu

Dagana 17. til 19. nóvember taka nokkrir nemendur FAS þátt í tölvuleiknum Xplore og keppa þar við kollega sína frá Skotlandi, Danmörku, Noregi og Færeyjum. Keppninni er stjórnað frá Færeyjum og þaðan koma líka flest liðin, en alls munu um 100 lið með 300 nemendur taka þátt í keppninni. Fimmtán nemendur í fimm liðum koma frá FAS og sér Hjördís Skírnisdóttir kennari í FAS um framkvæmdina í skólanum. Að sögn nemenda sem taka þátt í keppninni er þetta skemmtileg reynsla og mikið fjör.

Xplore keppnin er sett upp sem leikur sem felst í því að finna olíu við tilbúna eyju fyrir tiltekið fjármagn. Tólf efstu liðin spila til úrslita 21. nóvember og það lið sem ber sigur úr býtum fær peningaverðlaun sem verða afhent í Færeyjum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica