Nóvember
Hettusöngvari á Hala í nóvember (mynd:Björn Arnarson)
Hettusöngvari, karlfugl, á Hala í nóvember (mynd:Björn Arnarson)
Hettusöngvari, karlfugl, á Hala í nóvember (mynd:Björn Arnarson)

19.11.2003 Fuglar

Fálkinn dó í svæfingu

Fálkinn sem í haust var komið með á byggðasafnið á Höfn, særðan á væng og var í góðu yfirlæti og hjúkrun hjá Birni Arnarsyni safnverði, var í vetur sendur til Reykjavíkur til læknismeðferðar. Ekki tókst að lækna fálkanum því hann þoldi ekki svæfinguna og dó. Björn brá sér í fuglaskoðunarferð um helgina og segir hann að óvenju mikið sé búið að vera af smyrli í haust og eins fálkum. Fálkar hafa stundum sést hér á veturna en þessir sem hafa verið hér undanfarið eru ungfuglar sem flækjast um. Farfuglar eru flestir farnir til vetrarstöðva sinna.

Talsvert er af þessum hefðbundnu flækingum á svæðinu, hópur hettusöngvara hefur haldið sig á Hala undanfarið, svo eru nokkrar tegundir þrasta og glóbrystingar. Þetta eru fuglar sem koma hingað með sunnan áttinni, frá Englandi og frá Evrópu. Þessir fuglar geta lifað hér yfir veturinn ef þeir þeir fá nóg að éta.
Björn segir að allir amerísku fuglarnir sem sáust hér í vetur séu horfnir og telur hann líklegast að þeir hafi orðið smyrlinum að bráð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica