Nóvember
heilso
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands

18.11.2003 Nóvember

Alþjóðadagur langvinnrar lungnateppu

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands bíður almenningi að koma í öndunarmælingu á heilsugæslunni á morgun miðvikudag, en þá er alþjóðadagur langvinnrar lungnateppu. Langvinn lungnateppa er algengur og alvarlegur lungnasjúkdómur, og eru margir haldnir þessum alvarlega kvilla án þess að gera sér grein fyrir því. Mælingarnar fara fram milli kl. 9 - 11 og 13 - 15. Ekki þarf að panta tíma né borga fyrir þessar mælingar. Starfsfólk HSSA vonast eftir því að sem flestir líti við og skelli sér í öndunarmælingu.

  • þetta er númer 1
  • Þetta er númer 2



Langvinn lungnateppa er sjúkdómur, sem getur leitt til alvarlegrar fötlunar. Spáð er mjög aukinni tíðni hans á næstu áratugum. Aðalorsök sjúkdómsins hjá þeim sjúklingum sem nú greinast má rekja til reykinga. Mikilvægt er að greina sjúkdóminn snemma svo hægt sé að bregðast við með réttum hætti áður en óafturkræfar lunaskemmdir hafa átt sér stað. Besta greiningartækið til þess er öndunarmæling eins og nú er verið að bjóða uppá. Er því fólk hvatt til að nýta sér þetta tækifæri til að láta athuga lungnastarfsemi sína.

Bekkjarsáttmáli

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica