“Þetta er allt vitleysa Snjólfur”
Leikhópurinn Lopi fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir. Fyrsta frumsýning Lopa var haustið 1993 er frumsýnt var leikritið Skólalíf. Síðan þá hefur Leikhópurinn sýnt 13 sýningar og frumsýning Leikhópsins núna er 14. sýning hópsins. Allar sýningarnar hafa verið íslensk leikverk og hafa 9 af 14 verið frumsamdar fyrir Leikhópinn.
Leikhópurinn Lopi sýnir að þessu sinni leikritið “Þetta er allt vitleysa Snjólfur” og er höfundur verksins Guðjón Sigvaldason. Fjallar verkið um unglinga, einelti og ýmislegt er hrjáir ungdóminn. Ástin blómstrar og furðufuglar eru á sveimi.
Um 30 unglingar taka þátt í sýningunni og er leikstjóri Magnús J. Magnússon. Ungir sem aldnir eru hvattir til að fjölmenna á sýningarnar og sýna í verki stuðning við blómlega unglingastarfsemi.





Skrifa athugasemd