Upplýsinga- og kynningarfundur um hafrannsóknir- og fiskveiðiráðgjöf
Fréttatilkynning frá Hafrannsóknastofnuninni
Á undanförnum árum hefur Hafrannsóknastofnunin unnið markvisst að því að efla miðlun upplýsinga um rannsóknir stofnunarinnar á umhverfi hafsins og ástandi fiskstofna við landið með það markmið að efla umræðu um skynsamlega nýtingu auðlindarinnar. Í þessum tilgangi var efnt til skipulagðra funda allt í kringum landið árið 2001 þar sem málin voru rædd og skipst á skoðunum. Árin 2001 og 2002 tóku starfsmenn stofnunarinnar þátt í Fyrirspurnaþingi sjávarútvegsráðuneytisins um þorskrannsóknir sem einnig var ætlað að stuðla að upplýstri umræðu um þessi mál.
Um þessar mundir stendur yfir hringferð Hafrannsóknastofnunarinnar um landið og verður fundur haldinn í Nýheimum á Hornafirði þriðjudaginn 18. nóvember kl. 20:00.





Skrifa athugasemd