Nóvember
Um borð í Ásgrími Halldórssyni SF 250
Um borð í Ásgrími Halldórssyni SF 250

14.11.2003 Nóvember

Með fullfermi á leið til Hornafjarðar

Ásgrímur Halldórsson SF 250 er væntanlegur til Hornafjarðar í kvöld, með fullfermi af ágætri síld og hefst vinnsla hjá Skinney-Þinganes í kvöld. Jóna Eðvalds SF 200 kemur til löndunar á morgun, einnig með fullfermi. Það eru því væntanleg 1.400 – 1.500 tonn af síld næsta sólarhringinn. Aflann fengu skipin í Kolluál. Steinunn SF 10 er á miðunum fyrir austan land og var engin veiði hjá þeim í nótt.

Fyrir komandi törn er búið að frysta tæp 3.000 tonn hjá Skinney-Þinganes og mun því 3.000 tonna múrinn væntanlega verða rofinn um komandi helgi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica