Nóvember
Svanur (mynd JAI)
Svanur (mynd JAI)

14.11.2003 Nóvember

Ekki nægilegt viðurværi úr firðinum

Nokkuð hefur verið rætt um þann mikla fjölda álfta sem verið hefur á Suðausturlandinu í vor og sumar og hafa bændur áhyggjur af enn frekari fjölgun þeirra og á því tjóni sem þær valda. Sveinn Gunnarsson bóndi í Vík í Lóni segir að þar hafi verið óhemju mikið af álftum í vor og sumar og þær sækja stíft í túnin. Þær hafa valdið miklum skaða á túnum hér í Vík og oft hafa verið þar allt að hundrað álftir í einu. Þetta er verst þegar gróðurinn er að koma upp á vorin og þó reynt sé að reka þær burtu er maður varla kominn heim þegar hópurinn er kominn aftur segir Sveinn. Þetta er sérstaklega áberandi þegar stórstreymt er og hátt í lóninu, þá ná þær verr gróðrinum á botninum og eru svangar.

Sveinn álítur að þær hafi ekki orðið nægilegt viðurværi úr firðinum þegar fjöldinn er orðinn svona mikill, því sæki þær stíft í túnin og hvað mest þegar búið er að bera á áburð og gróðurinn kominn vel á stað. Sveinn segir að honum finnist svanasöngurinn, sem sumir kalla álftagarg, bara nokkuð fallegur og víst er að þarna er ekki um neinn smá svana-söngkór að ræða.
Nú er söngurinn þagnaður og flestar álftirnar farnar til vertarstöðva sinna, aðeins nokkrar eftir og eins líklegt að þær verði þar í vetur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica