Búið að úthluta byggðakvóta
Fiskistofa hefur nú lokið við að úthluta aflaheimildum til fiskiskipa hjá þeim sveitarfélögum sem ekki skiluðu inn neinum tillögum. Eins og áður hefur komið fram ákvað Sveitarfélagið Hornafjörður að leggja ekki fram tillögu um skiptingu þeirra heimilda sem komu í hlut sveitarfélagsins og hefur því Fiskistofa úthlutað þessum 26,3 t. sem komu í hlut Hornfirðinga á eftirfarandi hátt:
Þórir SF 77, 1.181 kg., Sigurður Ólafsson SF 44, 1.776 kg., Skinney SF 30, 3.384 kg., Garðey SF 22, 2.971 kg., Bjarni Gíslason SF 90, 510 kg., Erlingur SF 65, 2.726 kg., Hafdís SF 75, 1.446 kg., Steinunn SF 10, 3.514 kg., Hafnarey SF 36, 1.797 kg., Jóna Eðvalds SF 200, 2.654 kg., Þinganes SF 25, 3.822 kg. og Haukafell SF 111, 519 kg.





Skrifa athugasemd