Nóvember
Varnargarðar við Jökulsá í Lóni
Opnuð hafa verið tilboð í gerð varnargarða við Jökulsá í Lóni, neðan Hringvegar, alls 2500 m. að lengd. Lægsta tilboðið í verkið átti S.G. vélar ehf frá Djúpavogi kr. 14.949.000 sem er 59,3% af kostnaðaráætlun. Rósaberg ehf frá Hornafirði átti þriðja lægsta tilboðið og hljóðaði það upp á kr. 17.862.500 sem er 70,8% af kostnaðaráætlun. Verkinu skal að fullu lokið 1. júní 2004.
Eins og áður hefur komið fram er þessi framkvæmd ætluð til að verja lönd Volasels og Krossalands fyrir ágangi Jökulsár.





Skrifa athugasemd