Nóvember
Glaðbeittir framsóknarmenn
Glaðbeittir framsóknarmenn

10.11.2003 Nóvember

Kjördæmisþing á Hornafirði

Kjördæmisþing Framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi var haldið á Hótel Höfn s.l. helgi. Þingið hófst á föstudagskvöld með kosningu forseta þingsins, ritara og starfsnefnda þingsins. Að því loknu var kvöldverður og dansleikur. Hin eiginlegu þingstörf hófust síðan kl. 10 á laugardag og stóðu fram eftir degi. Halldór Ásgrímsson formaður flokksins ávarpaði þingið sem og framkvæmdastjóri flokksins, fulltrúi LFK og formaður SUF. Kosið var í stjórn kjördæmasambandsins og var formaður sambandsins Óskar Þórmundsson frá Keflavík endurkjörin sem og varaformaðurinn, Guðmundur Elíasson frá Vík.

Framsögur á þinginu í atvinnumálum og nýsköpun fluttu þingmenn flokksins, þeir Guðni Ágústsson og Hjálmar Árnason. Framsögu í samgöngumálum flutti Eygló Harðardóttir sem skipaði fjórða sæti listans í s.l. kosningum og í sveitarstjórnarmálum flutti framsögu Ísólfur Gylfi Pálmason sem skipaði þriðja sætið í Suðurkjördæmi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica