Nóvember
Frá málþinginu í Freysnesi (mynd G.I.)
Frá málþinginu í Freysnesi (mynd G.I.)

07.11.2003 Nóvember

Framlög aukin um tugi milljóna

Um fimmtíu manns sóttu málþing Ferðamálafélaga Austur Skaftafellsýslu og Skaftárhrepps sem haldið var í Freysnesi í vikunni. Sigurlaug Gissurardóttir setti málþingið og sagðist hún m.a.óska þess að málþingið væri upphaf að öðru og meira samstarfi félaganna ekki síst því sem tengdist Vatnajökulsþjóðgarðinum sem kemur til með að ná vestur í Skaftárhrepp. Rætt var um auðlindir Íslands og mikilvægi þess að menn vissu hvar helsta aðdráttaraflið væri.

Farið var yfir framtíðarspá í ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi, þróun í ferðamálum, hvernig finna þyrfti styrkleika og einnig veikleika í ferðaþjónustunni. Ógnanir af náttúruhamförum geta einnig verið tækifæri.
Fram kom að auka ætti framlög til greinarinnar í heild sinni á næsta ári um tugi milljóna. Hinsvegar er talið mjög mikilvægt að sveitarstjórnir komi myndarlega að rekstri upplýsingamiðstöðva á landinu vegna þess að upplýsingamiðstöðvar auka umferðina sem svo kemur sveitarfélögunum til góða.

Grunnupplýsingastöðvar á landinu verða níu og tvær innkomustöðvar önnur í Leifsstöð, hin á Seyðisfirði yfir sumarið. Ferðamálafulltrúar vilja hafa upplýsingamiðstöðvar sem víðast vegna þess að það skiptir svo miklu máli þar sem 70 % ferðamanna ferðast orðið á eigin vegum. Þá er mikilvægt og skiptir sköpum að samstaða ferðaþjónustuaðila sé í hverjum landshluta og einnig aðkoma sveitarstjórna að þessum málum. Málþinginu lauk með ljúffengum kvöldverði í Freysnesi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica