Nóvember
Námskeið hjá HSSA
Í gær og í dag hefur starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands sótt samskiptanámskeið á vegum stofnunarinnar. Fyrirlesarar eru Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson sálfræðingar. Námskeiðið er liður í endurmenntunarstefnu stofnunarinnar. Mæting er mjög góð hjá starfsfólki HSSA eða 71 starfsmaður og er mikil ánægja með námskeiðið sem og fyrirlesarana, sem koma efninu frá sér á bæði gagnlegan og skemmtilegan hátt.
Fyrirhuguð eru fleiri námskeið á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands eftir áramót.





Skrifa athugasemd