Nóvember
Einbreiðum brúm fækkar
Opnuð hafa verið hjá Vegagerðinni tilboð í endurbætur á Hringvegi í Lóni. Um er að ræða að setja stálplöturæsi í Össurá og Hlíðará auk 0,7 km. kafla í vegagerð. Lægsta tilboð í verkið átti Rósaberg ehf, Hornafirði og hljóðaði það upp á kr. 12.673.500 sem er 88% af kostnaðaráætlun. Verkinu á að vera að fullu lokið fyrir 15. maí 2004.
Við þessa framkvæmd fækkar einbreiðum brúm í Sveitarfélaginu Hornafirði um tvær og um leið eykst öryggi í umferðinni til muna. Vonandi fækkar einbreiðum brúm enn frekar á næstu misserum öllum til öryggis og ánægju.





Skrifa athugasemd