Nóvember
Ekki allir á sjó í dag
Ekki allir á sjó í dag

06.11.2003 Nóvember

Búið að frysta um 2.400 tonn

Hjá Skinney-Þinganes fengust þær fréttir í morgun að Steinunn SF-10 væri á leið til Hornafjarðar með 140 tonn og sömuleiðis Ásgrímur Halldórsson SF-250 með 270 tonn. Jóna Eðvalds SF-20 er á miðunum og eru þeir komnir með 300 tonn. Vinnslan í landi hefur gengið vel og er nú búið að frysta um 2.400 tonn hjá Skinney-Þinganes.

Samkvæmt tölum frá Samtökum fiskvinnslustöðva hafa verið veidd um 37.000 tonn af síld á vertíðinni og hefur mestum afla verið landað hjá Skinney-Þinganes, eða um 8.522 tonnum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica